16febrúar

uuuu sćlir nú

Hvað er að frétta.... það er ennþá bara jólablogg hjá mér og læti. Ég er ansi löt í þessu blessaða bloggi en ég ákvað nú samt að henda smá hérna inn núna;)
Jólafríið var bara snilld og allt það, byrjaði svo í skólanum aftur 12. jan og það er nú voða ljúft. Er núna með 3 hross, hann Æsi minn, Gosa litla og Dömu feituLaughing Er með Æsi og Gosa í tamningaáfanga hjá Reyni Aðalsteinss. en svo er ég bara með hana Dömu svona auka... gott að hafa nóg að geraWink 
Þetta er hún Dama. Hún er undan Gilfaxa frá Þóreyjarnúpi
Þetta er Gosi hann er undan Gamm frá Steinnesi.
 Svo er þetta Æsir faðir hans er einhver af graðhestunum hans Agga frá Hörgshóli Tongue out

Það gengur bara þokkalega vel með þau öll. Svo er ég að smíða léttikerru í búsmíði, það er nú bara stuð. Spurning hvorti ég hafi það ekki af að klára hana he he, ég vona það. Svo erum við bráðum að fara að æfa okkur í að rýja, það er gott að fara að rifja það aðeins uppSmile

Ég og Jónki fengum í jólagjöf saman eitt stykki folald frá mömmu minni og pabba. Heitir hún Ísold og er hún undan meri sem að mamma átti, hún var feld í haust. Hún hét Litla - jörp og var mikill gæðingur. Faðir hennar heitir Kóngur og er hann einnig frá okkur. Hér er svo ein mynd af henni



og svona fyrst að ég er sjúk í að setja inn myndir á þetta blessaða blogg þá ætla ég líka að setja inn mynd af henni Snædísi litluWink
Það er þessi kollóttaTongue out

Um helgina fórum ég og Jónki á þorrablót í skagafirði, fórum á 1000 mann blótið á sauðárkrók í boði Helga og Völu. Takk æðislega aftur fyrir okkurTongue out
Þar hitti ég marga sem að ég hef bara ekki hitt síðan að ég veit ekki hvenær, það var æðiCool Ég og Logi vorum sennilegast óvinsælasta danspaið á svæðinu, en við vonum að þið afsakið enda vorum við bara að "dansa" he heTongue out



Og eins og þið sjáið á þessum myndum þá var mjög gaman he he... það eru fleiri inná fésinuWink

Á föstudaginn fórum við líka á húnverslu liðakeppnina sem var haldin á hvammstanga. Keppt var í töllti og var mjög gaman að horfa áLaughing og auðvitað er það liðið mitt sem kom best út úr stigakeppninni... en það eru nú reyndar nokkur mót í viðbót eftir þannig að þetta er nú bara rétt að byrjaLaughing

Adios Veldur BrjánsWink

16. febrúar 2009 klukkan 19:29
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
2 athugasemdir
18desember

Ég á ađ vera ađ lćra...

... en ég nenni því ekki. En þetta er frekar fyndið finnst mér;)

SÓSÍALISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. 

KOMMÚNISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk. 

FASISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. 

NASISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo. 

SKRIFRÆÐI 
Þú átt 2 kýr. 
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir 
svo allri mjólkinni. 

HEFÐBUNDINN KAPITALISMI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast 
vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein 

SÚRREALISMI 
Þú átt 2 gíraffa. 
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám. 

BANDARÍSKA FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við 
fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna 
hún datt niður dauð. 


FRANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess 
að þú vilt eiga þrjár kýr. 

JAPANSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en 
framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja 
teiknimyndahetju, "Kúmann", sem nær miklum vinsældum um allan heim. 

ÞÝSKT FYRIRTÆKI 
Þú átt 2 kýr. 
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í 
mánuði og mjólka sig sjálfar.

ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar 
Þú átt 2 kýr. 
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í 
gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í 
skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og 
skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 
6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur 
meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. 
Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni 
til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum 
stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur 
almenningi í hlutafjárútboði. 
18. desember 2008 klukkan 00:20
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
3 athugasemdir
02desember

Punktablogg börnin mín;)

Jæja er ekki komin tími á smá blogg svona í tilefni þess að það sé þriðjudagurinn 2 desember og hún móðir mín á afmæli í dagWink

*Takk fyrir allar ábendingar með nafnið, við erum búin að ákveða Snædís;) sorry Jóhanna, en þú mátt samt fá mynd af henni í jólakortinu þínuLaughing
*Ég er búin að fara á rúningsnámskeið það var bara gaman
*Djöfull er erfitt að rýja... en maður kemst langt á þrjóskunni he heWink
*Hjördís kindin hennar Hjördísar er draumakind allra rúningsmanna, það verður sko sett á undan henni næsta haustLaughing
*Árshátíðin hjá skólanum var snilld
*Reyndar öll helgin bara, eruð örugglega búin að skoða myndir frá henni inná Facebook
*Það er búið að skíra litla drenginn hjá Ingu og Erlu hann heitir Arnar Þór, til hamingju með það guysCool
*Fór í nemendaferð á Háafell að skoða geitur og mig langar í eitt stykki geit í jólagjöfWink verður að vera gæf og að ég geti knúsað hanaWink
*Er að fara á sauðfjársæðinganámskeið á morgun miðvikudag. það verður bara gamanTongue out
*prófin byrja 8 og eru búin 19
*jóla jóla jólafrí... mikið hlakka ég tilLaughing

Já þetta er svona það sem hefur á daga mína drifið síðustu vikur.
Sé ykkur flestí jólafríinuWink

Adios Veldur Brjáns
02. desember 2008 klukkan 21:44
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
6 athugasemdir
03nóvember

Helgin

Uppskeruhátíðin var alger snilld og skemmtiatriðin voru æði  djöfull hló ég mikið... Ég vil líka óska öllum sem unnu til verðlauna innilega til hamingju  en ég veit nú bara ekkert slúður, það voru allir bara hressir og kátir og fullir sem er gott  

Um helgina þá völdum við Jónki eina gimbur sem við megum eiga og ég ætla nú að taka mynd af henni og skella hér inn.. En við erum að vandræðast með nafn á hana. Hún er hreinhvít, mössuð (17,5 læri), frekar lágfætt, og með lítinn svartan blett á annarri nösinni

En við erum að vandræðast með nafn á hana... faðir hennar heitir Sómi en ekkert nafn er á móður hennar. Við erum komin með nokkrar hugmyndir og nennið að segja hvaða nafn ykkur lýst best á  eða koma með nýjar hugmyndir, það verður að byrja á S.

Sæta

Snædís
Skoppa
Skvísa
Spenna
Skjamba


Allir að kommenta

Kveðja Ingveldur

03. nóvember 2008 klukkan 15:03
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
18 athugasemdir
27október

Fór í Dalina um helgina

Já ég skellti mér í búfjárræktarferð um helgina í dalina og það var rosalega gamanLaughing

Við Jónki byrjuðum á því á föstudeginum að fara til Akranes að hitta systur hans og mág því þau voru að eignast litla stúlku, hún var nú voðalega krúttlega en mér finnst öll svona lítil börn eins.. krumpuð og rauðWink
Svo brunaði ég í bæinn og fór út að borða með krökkunum sem ég var með í hússtjórnarskólanum. Það var æði að hitta þau öll afturTongue out

Svo fór á aftur á Hvanneyri og náði í Jónka, Þórönnu og Guðrúnu og við lögðum af stað í dalina. Við vorum nú bara rétt rúman klukkutíma í Búðardal, það var reyndar óþarflega mikið af hálku á leiðinni en golfinn komst þetta he heCool  Þá var harmonikku ball í gangi í Dalabúð með stór hljómsveitinni Nikkólínu. Við náðum nú bara rétt í endann á því en endinn var víst bestur því þar var einhver dúddi á trommum sem tók svona agalegt sóló fyrir okkur og Þóranna var svo heppin að hún fékk eiginhandaáritun frá honum he he... Svo skelltum við okkur á trúbadorakvöld á barnum þarna í búðardal.
Á laugardagsmorguninn mættum við í Skörð til að fylgjast með rúningskeppninni sem var bara snilldLaughing  ég var tekin í vinnu þarna við að skrifa fyrir dómarann sem að var að meta gæðin á rúningnum. Það var mjög gaman að gera það því hann var svo duglegur að segja mér hvað hann væri að gefa refsistig fyrir. Hann er breskur og ég átti nú stundum í erfiðleikum með að skilja hann en þá bara brosi ég og kinkaði kolli, vona að það hafi bara átt við í flestum tilfellum he heTongue out  En svo fórum við á fótboltamót og hrútasýningu í Sælingsdalstungu og svo fórum við á eitthvað verkstæði í Búðardal og þar var boðið uppá léttar veitingar og fleira svo um kvöldið skelltum við okkur á ball sem var alger snilld og var ölvunarstigið ansi hátt. Þetta var bara snilldar helgi í alla staði og Dalamenn eiga hrós skilið fyrir þessa hátíð hjá þeim  á sunnudagsmorguninn var náttúrulega bara haldið áfram og sagðar sögur frá kvöldinu áður.

En svo var sú ákvörðun tekin í gær að skella sér á uppskeruhátíð Þyts um helgina. Það verður bara gamanLaughing 

Kveðja frá Hvanneyri

Ps. svo set ég myndir inn á andlitið við tækifæri

 

27. október 2008 klukkan 14:03
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
2 athugasemdir
18október

Eitt léttur á kantinum;)

Fékk þennan sendan í pósti um daginnCool

Shrek, Angelina Jolie and Brad Pitt were all having lunch together.  Shrek said, 'I have always thought that I'm the strongest man in the world, but how can I be sure?'

Angelina Jolie agreed. 'I'm told I'm the most gorgeous of them all, but sometimes I wonder.'

Brad Pitt said, 'I'm pretty sure I'm the sexiest man alive but I've never had it confirmed.'

They all decided that the best way to find out if their beliefs were true was to ask the famed talking 'mirror, mirror on the wall' to confirm for them whether Shrek was the strongest, Angelina Jolie was the most gorgeous and Brad Pitt was the sexiest.  They agreed to meet again the next day for lunch to discuss their findings.

The next day Shrek walked up with a smile. 'Well, true. The mirror told me that I am the strongest man in the world.'

Brad Pitt perked up and said: 'And I know for sure that I'm the sexiest man alive.'

But Angelina Jolie lifted her sad, gorgeous face and said...

Who the hell is Ingveldur?

18. október 2008 klukkan 00:02
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
4 athugasemdir
29september

Hvađ er ađ frétta??

Jæja það er nú ansi langt síðan að ég hef skrifað hér inn en jæja ég ætla að koma með nokkra punkta hvað hefur að daga mína drifið síðan að ég skrifaði hér síðast:

# Fagnaði því að vera búin í verknámi með vikufyllerí á Landsmóti sem var bara snillld;)
# Byrjaði að vinna á Gauksmýri 7. júlí
# Var að vinna þar í allt sumar og það var bara stuð
# Aðeins mikið að gera, en þetta reddaðist allt saman;)
# Þorbjörg systir giftist manninum sínum honum Hákoni 12. júlí og ég var brúðarmey með litlu frænku minni henni Berghildi;)


# Fór í hestaferð og nokkra styttri rekstra, sem var æði


# Er búin að missa 20 kg síðan að ég var sem þyngst, sem er afar ánægjulegt

Fyrir!!                                                Eftir!!

# Sumarið var fljótt að líða en tókst að fara í eina óvissuferð sem var frábær í alla staði;)
# Svo kom haustið sem er MJÖG skemmtilegur tími
# Allar göngur og réttir eru búnar sem er leiðinlegt en það var æðislega gaman þær helgar;)
# Byrjaði í skólanum 22 sept og ég bý með 3 strákum hér á eyrinni sem er ótrúlega fínt;)
# Fyrsti fimmtudagurinn var tekinn með pompi og pragt;)



# Lærði að plægja og gekk svo frá plöntusafninu í fyrstu vikunni
# Stundaskráin hjá okkur er bara geðveik, erum flesta daga frá 8:15 til svona 16:30 til 17:30...

Núna um helgina sem var að líða voru stóðréttir heima og var ofboðslega gaman um helgina, þó að það hefði alveg mátt rigna aðeins minna í göngunum. Þó stytti upp og rigndi lítið eftir að við vorum komin niður. En það er hægt að sjá myndir af þessu öllu saman á
andlitinu hjá Þorbjörgu.




Svo næstu helgi eru stóðréttir í Víðidal og ég fæ að ríða heim með Guðrúnu Ósk og co. í Galtanes og fæ gæðingin hann Spóa;) sjaaaat hvað ég hlakka til;)

Ég er afar slakur bloggari og er eiginlega bara að blogga fyrir Sonju svo að þú fréttir nú eitthvað af manni meðan að þú ert í DK;)

Kveðja Ingveldur
29. september 2008 klukkan 21:27
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
11 athugasemdir
28júní

Ţetta er alveg ađ verđa búiđ!!!

Já það er alveg magnað að þessir 3 mánuðir séu að verða búnir... þetta er bæði búið að líða hægt og hratt... núna síðasta vika ætlaði t.d. aldrei að líða en það hafðist he heGlottandi En hann Sigtryggur lét svo vita kl. 18:00 að hann myndi koma næsta dag uppúr hádegi... já sæll takk fyrir að láta mig bíða í allan dag og stressa mig upp fyrir næsta dag!! og svo þegar að kallinn kom og prófaði mig og ég fór að segja þetta við hann þá komst ég að því að hann vissi það um hádegi að hann myndi ekki komast til að prófa mig... en að láta vita af því nei nei látum fólkið bara bíða!!!! þetta kalla ég hámark tillitsleysinnar... en hvað með það þá varð ég loksins prófuð og gekk það þokkalega nema stressið yfirtók mig á endanum og ég klúðraði nokkrum mjög auðveldum hlutum og endaði með einkunina 8,6 en ég er bara ánægð með hanaHlæjandi

En nú á ég bara eftir 1 heilan dag og svo morgun fjós á mánud. þá fer ég á Selfoss í einhverja ferð með ráðanautinum þar um Suðurland... það verður örugglega stuð... svo beint eftir það á landsmót og krossa fingur að Ásta verði ekki búin að keppaGlottandi
Á morgun er ég og Jónki að fara ríðandi héðan og á bæ sem heitir Hrólfsstaðahelli á hrossunum tveimur sem að ég er búin að vera að þjálfa og sjaaaat hvað mig langar að taka þau með mér norður, leiðinlegt að vera komin svona vel á veg með þau og svo bara bleeeees!!! en kannski vinn ég allt í einu í lottó og get bara keypt þau he heHlæjandi


En já þá er þetta verknám loksins búið og ég kemst NORÐURSvalur vá ég hef ekki komið heim síðan í apríl einhverntímann!!! svo verð ég að vinna á Gauksmýri í sumar, það verður örugglega stöööööðGlottandi

Ég vona að restin af sumrinu muni hljóma einhvernmeginn svona.... eiðibýlaklúbbsferð, hestaferðir, djamm, hreyfing, unglist og endalaust mikið af fíflaskap he heGlottandi
28. júní 2008 klukkan 20:57
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
10 athugasemdir
24júní

ÉG hata ađ bíđa...

... eins og svo margir vita þá finnst mér ekkert sérlega skemmtilegt að bíða eftir einhverju og núna er ég að bíða eftir honum Sigtryggi stór vini mínum... hann hringdi í gær um 6 leitið og tilkynnti það að hann myndi koma hér uppúr hádegi og prófa mig... það náttúrulega datt af mér andlitið því að hann var búinn að hringja í Jónka á sunnudeginum og segja að hann kæmi seinni partinn á vikunni!!! ég vissi ekki að þriðjudagur myndi flokkast undir seinni part á vikunni... en jæja hádegið er löngu liðið og ekkert bólar á Trixa... ég ætti nú samt ekki að kvarta yfir stuttum undirbúningstíma fyrir prófið því að Siggi Kúskur fékk að vita klukkutíma áður en hann færi í prófið!! þetta er alveg ótúrlegt... (og svo ætti ég kannski ekki að vera að blogga heldur lesa)Glottandi hann er hjá Kidda núna og vona ég að hann fari nú bráðum að láta sjá sig!!! Ég verð sennilegast spurð mest um mjaltir og hvað skeður inní júgrinu og fleira svona skemmtilegt, enda er ég alltaf að lesa eitthvað um mjaltir og mjaltatækni he heHlæjandi

Annars fer alveg að koma að landsmóti og já Hjördís bara nokkrir dagar sjaaaaat hvað ég hlakka tilGlottandi en ég ætti kannski að fara að lesa aðeins meira um kuldakæra gerla, fríar fitusýrur, frumutölu og fleira skemmtileg he heGlottandi

Sjáumst á landsmóti Veldur Brjáns
24. júní 2008 klukkan 16:40
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
2 athugasemdir
07júní

ég elska verknám...

...enda ekki annað hægt... enda er ég með einstaklega mikinn áhuga á blessuðu kúnni... ég held að ég ætli að verða kúabóndi!!

En jæja ég koma nokkrir góðir í tilefni dagsinsGlottandi

Hvað þarf marga í hverju stjörnumerki til að skipta um ljósaperu?

HRÚTUR : Bara einn. Viltu gera mál úr því eða ?

NAUT: Einn, en reyndu að koma nautinu í skilning um að sprungna peran sé ónýt og að það sé best að skipta um hana og að það eigi síðan að henda henni.

TVÍBURI: Tveir, en þeir skipta aldrei um peruna-- þeir ræða í sífellu um hver á að skipta um hana, hvernig er best að skipta um hana og af hverju þarf að skipta um peruna !

KRABBI: Bara einn. En það tekur geðlækni þrjú ár að hjálpa krabbanum að komast yfir áfallið og í gegnum sorgarferlið.

LJÓN: Ljón skipta ekki um ljósaperur, en stundum fá umboðsmennirnir þeirra Meyju til þess að gera það fyrir þau á meðan þau eru úti.

MEYJA: Um það bil 1.000.000 með skekkjumörkunum +/- ein milljón.

VOG: Humm, tvær. Eða kannski eina. Nei, annars höfum það tvær. Ef þér er sama ?

SPORÐDREKI: Þessar upplýsingar eru algert leyndarmál og einungis deilt með þeim Upplýstu í Stjörnusal hinnar Eldgömlu Reglu.

BOGMAÐUR: Sólin skín, dagurinn er ungur, allt lífið er framundan og þú ert inni, með áhyggjur af einhverri eldgamalli sprunginni peru ?

STEINGEIT: Ég eyði ekki tíma mínum í þessa barnalegu brandara.

VATNSBERI: Sko, þú þarft að minnast þess að allt í umhverfi okkar er hrein orka svo að.....

FISKAR: Ljósaperu? Hvaða ljósaperu?

Í hvaða stjörnumerki ert þú???

07. júní 2008 klukkan 12:54
Ingveldur Ása Konráđsdóttir
11 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Ingveldur Ása Konráđsdóttir
  • Stađur: Húnaţing vestra
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Er nemandi í LBHÍ
  • Hjúskaparstađa: Á pikkföstu;)

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...